Nú er ekkert mál að skipuleggja fríið með allri fjölskyldunni, því við á Hótel Laxá tökum fagnandi á móti hundum.
Við notumst við stærri herbergin okkar og hægt er að ganga inn á ganginn í þeim án þess að fara í gegnum aðal inngang hótelsins. Þannig geta hundurinn farið beint af bílastæði inn í herbergi. Góðar gönguleiðir eru í kringum hótelið.
Vinsamlegast kynnið ykkur eftirfarandi reglur:
- Taka skal fram við bókun að hundur fylgi, þar sem sérstökum herbergjum er úthlutað
- Hundar mega ekki vera á almenningssvæðum hótelsins
- Við inn- og útritun skal hundur bíða bundinn úti eða í bíl
- Hundar skulu vera í taumi á leið til/frá herbergi
- Hunda má aldrei skilja eftir eina á herbergi
- Hundar skulu vera í búri inn á herbergi
- Hundar skulu vera vel siðaðir og hávaðalausir
- Hámark 1 hundar í herbergi
- Við innritun er greitt 3.000 kr þjónustugjald fyrir herbergi á dag (hámark 15.000 kr. fyrir lengri dvöl)
- Gestir bera ábyrgð á hundinum og mögulegum skemmdum og/eða meiðslum á fólki sem hundurinn kann að valda
- Verði ónæði af hundinum áskilja Hótel Laxá sér rétt til að vísa honum og eigendum á dyr